Home
grosa4

Júní 2008

S M T W T F S
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930     

Advertisement

Syndicate

RSS Atom

Fyrri 10 færslur

19. Jún. 2008

free


maybe the most magnificent musician, with rare exceptions

http://www.youtube.com/watch?v=PoFYV8IOtR4&feature=related

-

5. Jún. 2008

dauðarefsingar í Bandaríkjunum

frá 1976 hafa 1102 manns verið teknir af lífi í Bandaríkjunum vegna dauðarefsinga.

það bíða í allt 3263 fangar á "death row" eftir örlögum sínum.

þriðji hver sem er tekin af lífi er svartur. rannsókn sem var gerð 2007 í Yale háskóla sýndi fram á að hlutfall svartra sakborninga í Connecticut sem fékk dauðarefsingu var þrefalt hærra en hvítra sakborninga í tilfellum þar sem fórnarlambið var hvítur einstaklingur.

flestir hafa verið teknir af lífi í Texas:

405  Texas
99  Virginia
86  Oklahoma
66  Missouri
64  Florida
37  North Carolina
41  Georgia
38  Alabama
37  South Carolina
27  Louisiana
27  Arkansas
26  Ohio
27  Arizona
19  Indiana
14  Delaware
13  California
12  Nevada
12  Illinois
9  Mississippi
6  Utah
5  Maryland
4  Washington
4  Tennessee
3  Nebraska
3  Pennsylvania
3  Montana
2  Kentucky
2  Oregon
1  Connecticut
1  South Dakota
1  New Mexico
1  Colorado
1  Idaho
1  Wyooming
0  Kansas
0  New Hampshire

að auki hafa 3 verið teknir af lífi "federal".
ríki sem eru ekki með dauðarefsingu eru 16:

Alaska, Hawaii, Iowa, Maine, Massachusetts, Michigan, Minnesota, New Jersey, New York, North Dakota, Rhode Island, Vermont, West Virginia, Wisconsin, District of Columbia og Puerto Rico

47% Bandaríkjamanna styðja dauðarefsingar en þeim fer fækkandi sem gera það.

20. Maí. 2008

"Reykjavík Belfast"

talandi um svala rappara og bræður mína. hér er nýjasta myndband og lag litla bróður míns Erps og Rottweiler hundanna.
magnað flott.

REYKJAVÍK BELFAST


http://www.youtube.com/watch?v=2arIei1ycK8


my little brother and his rap group, xxx Rottweiler Hundar, newest video and song, about state- and policeviolence in Iceland. the pics in the video are real pics from Iceland.

30. Apr. 2008

L.O.C.

flottustu rapparar heimsins eru Sesar A og Blaz Roca. þeir eru frumkvöðlar íslensks rapps. Sesar A er afi rappsins á Íslandi, hann gaf út fyrsta diskinn með rappi á íslensku og Blaz Roca og félagar í Rottweiler fylgdu í kjölfarið.

flottasti rappari Danmerkur og sem kemst nálægt því að vera eins flottur og þeir að ofan er L.O.C.

http://da.wikipedia.org/wiki/L.O.C.



hlustaðu bara á eitt flottasta lagið, Så Bizart, á nýja diskinum hans :

http://www.youtube.com/watch?v=KudvjvNBwWk&feature=related

og þetta sem er líka eitt það besta á nýja disknum, með sætum ´80 hljómi, Fellatio:

http://www.youtube.com/watch?v=CxD6W3rJfnI&feature=related


15. Mar. 2008

andstaða við vínsölu í búðum aukist

það er gleðiefni að andstaða við sölu áfengis í matvörubúðum hefur aukist á Íslandi. núna er, skv nýjustu könnun Gallup, jafn stórar fylkingar sem eru með og á móti sölu léttvíns og bjórs en stór meirihluti á móti sölu sterks áfengis.

þau vandamál sem hljótast af misnotkun áfengis eru mikið til greidd af skattpeningum okkar, sameiginlegum sjóði. þess vegna verða að koma tekjur inn fyrir því og þessvegna á ríkið að fá þær tekjur til að standa straum af þessum kostnaði. ef matvörubúðareigendur stæðu straum af þessum kostnaði gott og vel, þá gætu þeir selt áfengi. en - þeir gera það ekki nema ef þeim sjálfum dettur það í hug og stinga annars gróðanum sem hlýst af þessu í eigin vasa. samfélagið situr uppi með vandamálið, kaupmenn ekki.

mér finnst samt alger óþarfi að áfengisverð sé eins hátt og raun ber vitni. það mætti alveg slaka aðeins á í sköttunum sem er sett á þetta. staðreyndin er jú sú að flestir kunna að fara með áfengi og það er ekkert holt að ætla að stjórna áfengishegðun með þessum hætti. forvarnir eru betri kostur.


annað sem er umhugunarvert: á að senda fólk af örðum etnískum uppruna heim til sín ef það gerist sekt um glæp? sko ef viðkomandi er ekki ríkisborgari viðkomandi lands?

í fyrra lamdi ungur maður, hérna í DK, 17 ára kærustuna sína til bana. hann notaði meðal annars kústskaft sem var margbrotið eftir aðfarirnar. fjölskyldan hans var ekki heima en kom að þar sem allt var um garð gengið. þeim fannst rétt að taka til áður en sjúkrabíll var tilkallaður. maðurinn er ekki danskur að uppruna, er með erlent ríkisfang. kærstan var dönsk. ríkisfangi fylgja skyldur og réttindi. það er ekki bara hægt að taka þetta úr samhengi, það er ekki hægt að njóta réttindanna án skyldunnar. og hvað á að gera? refsa morðingjanum? hvernig á að refsa honum? setja hann í fangelsi, eða senda hann heim? hann hlaut 12 ára dóm og er vísað úr landinu fyrir lífstíð.

ég hef velt fyrir mér þessum reglum Dana að senda afbrotamenn með erlent ríkisfang heim til sín og hvað sé best að gera í þessum málum. en - í þessu tilfelli segi ég: burt með þetta viðbjóðslega ógeð...

3. Feb. 2008

bandarískt fangaflug í norrænni lofthelgi

ég sá athyglisverða danska heimildamynd um fangaflug CIA hér á DR1 í vikunni. klukkutíma langur þáttur þar sem tveir fréttamenn fara í saumana á fangaflugsmálinu og  athuga hvort eitthvað sé hæft í því að flugvélar á vegum CIA hafi millilent í danskri landhelgi með fanga á leið í fangelsi í lögleysu ríkjum. niðurstaða fréttamanna er svo ekki verður um villst, að flugvélar hafa millilent í Grænlandi og öll gögn benda til þess að um hafi verið að ræða fangaflug. þetta er mjög vel unnin þáttur, gögnum safnað eins og gert er við faglega rannsókn sakamála og þau lögð til grundvallar að ályktun.

aðhald fjölmiðla hérna í Danmörku er geysi mikið og gott, umræddir fréttamenn velta því fyrir sér afhverju dönsk yfirvöld hafa ekki aðhafst neitt í málinu þrátt fyrir þær ásakanir sem hafa komið fram í þessu máli. þeir hefja þáttinn á tilvitnun í orð m.a. forsætisráðherrans Anders Fogh, þar sem hann segir að ríkisstjórnin hafi ekki vitneskju um að það hafi verið brotið á alþjóðlegum sáttmálum í þessum efnum og að það sé ástæðulaust að rannsaka það. það sé sem sagt ekkert sem bendi til annars en að það sé verið að halda í heiðri alþjóðlega sáttmála og það þurfi ekki að rannsaka, hvort allt sé með felldu í þeim efnum. orð forsætisráðherrans hljóma kjánalega miðað við hvað raddir um fangaflug hafa verið háværar, meðal annars hefur Evrópu Sambandið verið að rannsaka þessi mál. og eftir að hafa horft á þáttinn og fengið staðreyndirnar beint í fésið þá fær maður aumingjahroll þegar maður hugsar til þess að forsætisráðherra Dana skuli ekki sýna ábyrgð. a-u-m-i-n-g-j-a-h-r-o-l-l. þessi þáttur gæti hinsvegar sett af eitthvað af stað, þessu er vel fylgt eftir hérna af DR, ráðherrarnir verða að svara til saka. það sem er samt kaldhæðnin í þessu öllu saman er að í svokölluðu lýðræðis-réttarríki eins og Danmörku þarf fréttamenn til að setja þetta ferli af stað, sem annars ætti að vera á ábyrg ð stjórnmálamanna. það er grafalvarlegt mál ef lýðræðisríki hefur auðveldað þessa glæpi með því að aðhafast ekkert. og tekið beinan þátt í þeim með því að lána lofthelgi og flugvelli til flutningsins.

ég sá í fréttum í kvöld að Ísland ætlar að bregðast við þessum ásökunum og senda tollara til eftirlits inn í erlend millilandaflug. það er góð byrjun.

þáttinn má nálgast á DR http://www.dr.dk/ á forsíðunni, undir DR1 dokumentaren: CIAs hemmeligheder, en þátturinn heitir  "CIA´s danske forbindelse".

23. Jan. 2008

haltu þér fast!: bandarískir-túrhestar-spurningar í Kanada!


þetta er óborganlegt!
frændi minn sem býr í Bandaríkjunum sendi mér eftirfarandi tölvupóst með spurningum sem starfsfólk Banff National Park Information í Kanada hafa fengið frá bandarískum kanatúrhestum. þeir sem hafa fordóma gagnvart kananum geta virkilega fóðra fordóma sína um kanagreyin við þennan lestur, og þetta er víst ekki brandari, heldur raunverulegar spurningar sem kandadískt starfsfólk garðsins hafa fengið frá bandarískum túrhestum!

1. How do the elk know they're supposed to cross at the "Elk Crossing" signs?
2. At what elevation does an elk become a moose?
3. Tourist: "How do you pronounce 'Elk'?"
    Park Information Staff: "'Elk'" Tourist: "Oh".
4. Are the bears with collars tame?
5. Is there anywhere I can see the bears pose?
6. Is it okay to keep an open bag of bacon on the picnic table, or should I store it
    in my tent?
7. Where can I find Alpine Flamingos?
8. I saw an animal on the way to Banff today - could you tell me what it was?
9. Are there birds in Canada?
10. Did I miss the turnoff for Canada?
11. Where does Alberta end and Canada begin?
12. Do you have a map of the State of Jasper?
13. Is this the part of Canada that speaks French, or is that Saskatchewan?
14. If I go to B.C., do I have to go through Ontario?
15. Which is the way to the Columbia Ricefields?
16. How far is Banff from Canada?
17. What's the best way to see Canada in a day?
18. Do they search you at the B.C. border?
19. When we enter B.C. do we have to convert our money to British pounds?
20. Where can I buy a raccoon hat? ALL Canadians own one, don't they?
21. Are there phones in Banff?
22. So it's eight kilometers away... is that in
    miles?
23. We're on the decibel system you know.
24. Where can I get my husband really, REALLY, lost??
25. Is that two kilometers by foot or by car?
26. Don't you Canadians know anything?
27. Where do you put the animals at night?
28. Tourist: "How do you get your lakes so blue?"
    Park staff: "We take the water out in the winter and paint the bottom."
    Tourist: "Oh!"

(Yes, they're ALL TRUE as heard at the information kiosks manned by Parks Canada staff!)

ég verð að viðurkenna það að lungun á mér nær féllu saman af hlátri þegar ég las þetta...

8. Jan. 2008

rauða kverið handa frændanum

skóla- og námssystir mín spurði mig um daginn hvort það væri ekki góð hugmynd að gefa frænda sínum rauða kverið í jólagjöf. við vorum í bússinum á leið frá skólanum og niðrí bæ saman, það var rosa umferð og strætóinn stappaður, við þurftum að standa og héldum í skólatöskurnar okkar með annari og með hinni reyndum við að halda okkur í súlurnar í bússinum til að detta ekki á næsta mann. hún var að velta fyrir sér að gefa frænda sínum rauða kverið í jólagjöf og spurði hvernig mér fannst sú hugmynd, frændinn væri 5 mánaða. ég sagði henni að auðvitað væri þetta alveg frábær hugmynd. og hvað ætti maður svo sem að gefa honum annað? þetta er það sem börn þurfa. um að gera að ala einstaklinga upp rétt frá byrjun á réttum forsendum. það er auðvitað aldrei of seint að byrja en best að byrja strax. og þetta fannst mér frábær gjöf, rauða kverið handa 5 mánaða gamla frændanum. gott að fá inn tilveruna í réttu ljósi með móðurmjólkinni! byrja strax að þylja úr kverinu! og bara við öll tækifæri, meðan krakkinn er að matast, meðan maður er að skipta um bleyju! svo já ég studdi hugmynd hennar um að gefa frændanum, 5 mánaða gömlum, rauða kverið. en ekki hvað?

20. Okt. 2007

Gorski Škrat og lambalæri og allskyns

hér er ég í gleðskap á heimili mínu í október þegar hið danzk/íslenzka Tröllavinafélag var stofnað hérna í Árósum. það er ekki kviknað í eldhúsinu bakvið mig, myndartakan er bara svona flott því alvöru ljósmyndari tók myndina og notaði eitthvað trikk á myndarvélinni minni til að ná þessum kviknað í eldhúsinu effekt.
ég er að gæða mér á flatböku síðla nætur en kvöldverðurinn var íslenzkt lambalæri. drykkurinn var Gorski Škrat, svartfellskur dvergur, meiriháttar drykkur.
hér er Gorski Škrat eða vinur hans og hann var svona þegar ég kynntist honum.

ég er sem sagt komin heim úr skemmtilegu sumarfríi um fyrrverandi Júgóslavíu og er aftur tekin til við þá iðju mína að hafa gagn af hinum akademíska heimi hérna í Árósum. það er ótrúlega nærandi þetta nám, mikið að lesa og spennandi. ég er t.d. núna að fara skríða upp í rúm með bók í hönd sem skrifuð var 1966 og fjallar um félagslegan uppruna einræðis og lýðræðis. svona klassiker um þetta dót. íslenzkt lambalæri og Gorski Škrat eru líka klassikerar, núna.

22. Ágú. 2007

Dubrovnik

hallo elskurnar

eg er i Dubrovnik i Kroatiu, kom hingad fra Montenegro og Sloveniu gegnum Serbiu. tad er virkilega gaman ad kanna framandi stadi og eg hef ekki sist ahuga a politisku astandi herna. spjalladi vid heimamann i dag, verkfraeding sem sagdi ad Tito hefdi verid topp madur. sjalfur hefdi hann fengid haskolamenntun sina i tid Titos, og thad an endurgjalds. thannig er thad ennthann dag i dag i Kroatiu, Kroatar hafa adgang ad menntun endurgjaldslaust.

mer synist tetta vera thokkalega vel sett lond hvad mentalitet vardar og jafnvel fjarhagslega, civilisasjon herna og betur sett jafnvel en sudur Italia. alla vega Slovenia, Montenegro og Kroatia. get ekki daemt um restina af fyrrverandi Jugoslaviu londunum, enda lestadis bara gegnum Serbiu og kom ekki til hinna.

Dubrovnik er hafnarborg, og gamli midbaerinn er umlukinn borgarmur. thetta verdur ad segjast astonishing.
hrein fegurd.

fer nuna a gistiheimilid mitt thar sem eg og ferdafelaginn minn, Vesteinn, aetlum ad setjast ut a balkoniid i herberginu okkar sem hefur utsyni yfir borgina og hafid og gaeda okkur a innlendum iskoldum pivo - bjor!

dasmalegt lif!

Fyrri 10 færslur